151. löggjafarþing — 26. fundur,  26. nóv. 2020.

kostnaður vegna losunarheimilda.

[10:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Síðustu misseri höfum við heyrt margar sögur af því, sem er stundum kallaðar hræðsluáróður, held ég, eins og það hefur verið sett fram, að Íslendingar verði neyddir til að borga milljarða í skaðabætur fyrir að hafa ekki staðið sig nógu vel við að uppfylla kvaðir Kyoto-bókunarinnar. Hafa hæstv. ráðherrar Vinstri grænna verið duglegir að minna okkur á þetta. Nú síðast fyrir fáum dögum var sagt frá því í Fréttablaðinu, í viðtali við hæstv. umhverfisráðherra, að þessi kostnaður myndi hlaupa á milljörðum króna vegna þess að við höfum ekki staðið okkur nógu vel. Skilaboðin eru alltaf þau að það þurfi að grípa til harðra aðgerða til þess að sleppa við slíkar sektir og þá væntanlega draga úr framleiðslu og efnahagsumsvifum hér á Íslandi.

En nú hefur formaður loftslagssjóðs upplýst um það í Fréttablaðinu að hægt sé að kaupa svokallaðar CER-einingar til að leysa þetta mál og það muni ekki kosta nema um 187 milljónir á núverandi gengi eða verði þessar einingar.

Því spyr ég hæstv. ráðherra: Mun ráðherrann ekki tryggja að þetta mál verði leyst annaðhvort með slíkum hætti og gera það í samráði við hæstv. fjármála- og umhverfisráðherra, eða einfaldlega segja okkur frá þessu kerfi sem enginn virðist skilja eða gera sér grein fyrir hvernig virkar, því að við vitum ekki hvað verður um þetta fjármagn? Ég hef alla vega ekki heyrt skýringar á því frá þeim ráðherrum sem talað hafa mest um þetta. Það er margt undarlegt í þessu öllu. En þarna er þá lausn sem er mun ódýrari en gefið hefur verið til kynna með þeim hræðsluáróðri sem við höfum búið við hérna í nokkur misseri.