151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

20. mál
[14:08]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þingflokkur Pírata styður þessi þrjú mál sem fram undan eru. Þau eru mikilvæg skref í réttindabaráttu hinsegin fólks sem ber að fagna. Og það ber að þakka fyrir þá góðu vinnu sem fór í þessi mál, fyrir góða vinnu innan nefndarinnar, hv. allsherjar- og menntamálanefndar, og fyrir vinnu framsögumanns málsins, hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur. Það hefur verið vel að þessu staðið. Fólk er vel að þessu komið. Þetta er ánægjulegur dagur. Þingflokkur Pírata styður þessi mál og óskar okkur öllum til hamingju með að vera komin hingað.