151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

fjöleignarhús.

748. mál
[14:17]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við þingmenn Miðflokksins styðjum þetta mál. Ég setti þó fyrirvara við málið vegna þess að Öryrkjabandalagið sendi okkur í velferðarnefnd nokkrar tillögur til úrbóta. Ég hefði viljað sjá að tekið væri tillit til þess. Ein tillaga Öryrkjabandalagsins var að bílastæði í kjallara væru áfram þinglýst á íbúðir en kvöð verði á sérmerktum bílastæðum um að hreyfihamlaður einstaklingur taki þau yfir ef til þess kemur. Ég hefði viljað að við tækjum mark á þeirri ábendingu. Ég hefði viljað að við hefðum hlustað á Öryrkjabandalagið.