151. löggjafarþing — 110. fundur,  9. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[16:59]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég ætlaði nú bara að koma hér upp og þakka forseta fyrir að bregðast við. Ég held að við þurfum ekkert að lengja neitt sérstaklega mikið þessa umræðu hér um fundarstjórn þar sem forseti ætlar sér að gera hálftímahlé og þakka ég fyrir það, það er skynsamlegt.