152. löggjafarþing — 18. fundur,  28. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[11:53]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Hér er verið að fresta gistináttagjaldinu svokallaða, sem er mikilvæg tekjulind fyrir sveitarfélögin, um tvö ár. Við vitum nú þegar að staða sveitarfélaga er ekki góð og ég efast um að þessi frestun sé til gagns. Þess vegna greiðum við atkvæði gegn þessu.