152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég átta mig ekki alveg á því hvert hann er að fara en ég hafna því að markvisst sé verið að vinna að því hjá stjórnvöldum að fækka fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Ég sagði hins vegar í fyrra svari mínu að þetta væri eitthvað sem við þekktum og hefði áður gerst þegar áföll hafa riðið yfir, að það verður samþjöppun. Það mun að öllum líkindum verða samþjöppun í þessari grein eins og öðrum. En ég ítreka það sem ég sagði í fyrra svari mínu: Við erum með öll þessi úrræði til að reyna að grípa þá aðila sem hafa fundið hvað mest fyrir högginu á síðustu tveimur árum.