152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

undirritun drengskaparheits.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með staðfestingu kosningar Dagbjarts Gunnars Lúðvíkssonar og Þorgríms Sigmundssonar og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum. Þorgrímur Sigmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, 8. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]