152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:39]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Fyrir nýjan þingmann eins og mig er svolítið sérstakt að upplifa þau vinnubrögð sem oft og einatt eru viðhöfð hér í þinginu. Við höfum nú í marga daga setið í samræðum við hæstv. heilbrigðisráðherra um ýmis mál sem eru mjög mikilvæg og þarfnast umræðu. En einhvern veginn hefur það bara verið þannig að þetta hefur verið samtal stjórnarandstöðu við heilbrigðisráðherra og lítið annað út úr þessu að hafa en að samtal á sér stað við þennan viljuga heilbrigðisráðherra sem situr hér klukkutímum saman í spjalli við stjórnarandstöðuna. Ég vonast bara til að ég fari að sjá þennan fína heilbrigðisráðherra í liði með stjórnarandstöðunni, það væri kannski ágætt í framhaldinu.