152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[18:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég segi bara örstutt: Öll fjárfesting í list á eftir að skila sér margfalt til baka. Við höfum séð það með tónlistarfólkið okkar. Við höfum séð það með leikarana okkar. Við höfum séð það með myndlistarfólkið okkar. Það skapar gjaldeyristekjur, það skapar ferðamennsku og við þurfum bara að finna út úr því hvernig við fáum alla til að skilja það.