Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

matvæli og eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

475. mál
[21:33]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka þingmanni Suðvesturkjördæmis fyrir góðar ábendingar um að kynna mér málin. Ég get glatt hann með því að rifja það upp að hann kenndi mér einu sinni Evrópurétt á fyrsta árinu mínu í lagadeild Háskóla Íslands og færi honum góðar þakkir fyrir. Ég stend við það að hér er um að ræða hugsjónir og skoðanir. Við vitum að við komumst ekki að niðurstöðu um þetta mál í kvöld. En við ætlum samt sem áður að fara varlega í því að væna þingheim um að Íslandi sé ekki sýnd virðing hér í þingsal í kvöld.