152. löggjafarþing — 67. fundur,  8. apr. 2022.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

457. mál
[15:52]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Um meginreglur við sölumeðferð stendur í 3. gr. laga um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum:

„Þegar ákvörðun er tekin um undirbúning og framkvæmd sölumeðferðar eignarhluta skal áhersla lögð á opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni. Með hagkvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhluti. Þess skal gætt að skilyrði þau sem tilboðsgjöfum eru sett séu sanngjörn og að þeir njóti jafnræðis. Þá skal við sölu kappkosta að efla virka og eðlilega samkeppni á fjármálamarkaði.“

Hér eru lög sem kveða á um að leita hæsta markaðsverðs en hlutabréfin eru seld með afslætti. Hér eru lög sem kveða á um að gæta gagnsæis og hlutlægni en hlutabréf eru seld til valinna einstaklinga í lokuðu söluferli. Þetta er lögbrot. Við þurfum rannsóknarskýrslu Alþingis um þessa sölu.