Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[23:51]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann verður bara að virða það við mig að ég skildi hv. þingmann með þeim hætti, og geri jafnvel enn, (BLG: … Vá.) að það ríki ekki fullkomið traust þingmannsins til Ríkisendurskoðunar. Það verður bara að hafa sinn gang. (BLG: Hættu þessu.) Að hann treysti Ríkisendurskoðun til að sinna þessum verkefnum en bara ekki í þessu tilfelli. (Gripið fram í.) Ég skil hv. þingmann enn þá minna í dag.