Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[02:16]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að stefnt er að sérstakri umræðu gagnvart forsætisráðherra síðdegis á morgun og ég á ekki von á öðru en að það standi. Varðandi framhald þingstarfanna í þessari viku þá verður fundur með þingflokksformönnum fyrir eða um hádegi á morgun og þar verður farið yfir aðra þætti sem m.a. varða þetta mál og þingstörfin að öðru leyti.