Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

afturköllun dagskrártillögu.

[10:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Við lok þingfundar í gær tilkynnti forseti að borist hefðu tvær dagskrártillögur frá Birni Leví Gunnarssyni annars vegar og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur hins vegar og að atkvæðagreiðslur um þær myndu fara fram í dag. Báðar dagskrártillögurnar hafa verið dregnar til baka og koma því ekki til atkvæða.