Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  2. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:18]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að þegar umræður dragast á langinn, eins og nú hefur gerst í þessu máli, þá verður forseti að hafa nokkurt svigrúm til að meta það hvenær þingfundi lýkur og verður að ráða það af gangi umræðunnar og hvernig málum vindur fram. Þess vegna hefur forseti kosið að gefa ekki ákveðna tímasetningu í því en forseti hyggst hins vegar halda umræðum áfram um sinn.