154. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2023.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:41]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa sex mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð hafa þingflokkarnir einnig sex mínútur hver.

Röð flokkanna er í báðum umferðum þessi: Vinstri hreyfingin grænt framboð, Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Miðflokkurinn.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í seinni umferð.

Fyrir Samfylkinguna tala Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Jóhann Páll Jóhannsson, 4. þm. Reykv. n., í seinni umferð.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Jakob Frímann Magnússon, 8. þm. Norðaust., í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrri umferð og í seinni umferð Diljá Mist Einarsdóttir, 6. þm. Reykv. n.

Ræðumenn Pírata verða í fyrri umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvest., og í seinni umferð Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þm. Reykv. s.

Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Lilja Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, og í seinni umferð Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest., og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þm. Reykv. n., í þeirri seinni.

Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest, í seinni umferð.