132. löggjafarþing — 23. fundur,  16. nóv. 2005.

Byggðastofnun.

190. mál
[19:18]
Hlusta

Valdimar L. Friðriksson (Sf):

Virðulegi forseti. Miðað við þann fjárhagsvanda sem rætt er um hjá Byggðastofnun læðist óneitanlega að manni sá grunur að það sé satt sem sagt er, að til standi hjá iðnaðarráðherra að leggja stofnunina niður. Er það rétt sem haldið er fram að á næstu árum hyggist hæstv. iðnaðarráðherra leggja Byggðastofnun niður?