133. löggjafarþing — 22. fundur,  7. nóv. 2006.

greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

266. mál
[15:03]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir viðbrögð hv. þingmanns og nefndarformanns og tek eindregið undir orð hans um heiðarleika, sanngirni og siðferði í atvinnulífinu, mikilvægi þeirra þátta og um viðhorf forustumanna atvinnulífsins í því efni sem ég þekki sjálfur og er allt saman hárrétt í orðum hv. þingmanns.

Ég tek líka undir og fagna orðum hans um skýrleika og tímanleika úrskurða sem er mjög mikilvægt atriði í þessu sambandi. Ég tek undir það sem hann sagði og þakka undirtektir hans að öðru leyti.