133. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2007.

VES-þingið 2006.

615. mál
[16:04]
Hlusta

Guðjón Hjörleifsson (S):

Virðulegi forseti. Ég flyt skýrslu Íslandsdeildar VES-þingsins fyrir árið 2006. Skýrslan liggur fyrir á þskj. 915 en ég mun stikla á því helsta sem fram kemur í skýrslunni.

Vestur-Evrópusambandið VES er varnarbandalag Vestur-Evrópuríkja og var stofnað með Brussel-sáttmálanum árið 1948. Stofnun Atlantshafsbandalagsins NATO árið 1949 skyggði nokkuð á starfsemi VES en með breyttri skipan öryggis- og varnarmála í kjölfar endaloka kalda stríðsins jókst mikilvægi stofnunarinnar til muna.

Með Maastricht-sáttmálanum árið 1991 var VES falin útfærsla á framkvæmd varnarmála og hluta sameiginlegrar utanríkis- og öryggismálastefnu Evrópusambandsins. Næstu ár efldist VES verulega og gegndi æ stærra hlutverki í öryggismálum Evrópu auk þess sem sambandinu var ætlað að annast framkvæmd á fyrirhuguðum varnarmálahluta ESB sem átti að gegna hlutverki Evrópustoða NATO. Af þessum sökum var litið á VES sem hlekkinn á milli NATO og utanríkis- og varnarmála.

Árið 2000 staðfestu leiðtogar ESB að NATO yrði áfram grundvöllur sameiginlegra varna ríkja sambandsins en jafnframt væri nauðsynlegt bæði að koma á nýjum pólitískum og hernaðarlegum stofnunum er gerðu Evrópuríkjunum kleift að efna til hernaðaraðgerða undir forustu ESB þegar bregðast þurfti við alþjóðlegum vanda. Samkvæmt ákvörðunum leiðtoga aðildarríkja ESB hefur nauðsynlegum stofnunum þegar verið komið á fót innan annarra stoða ESB. Þróunin í átt að sjálfstæðum hernaðarmætti ESB hefur gert það að verkum að hlutverk VES í öryggis- og varnarmálum álfunnar hefur minnkað verulega.

Virðulegi forseti. VES-þingið var stofnað árið 1954 og kom fyrst saman ári síðar þegar verulegar breytingar voru gerðar á stofnsáttmála VES, m.a. til að veita Ítalíu og Þýskalandi aðild að sambandinu. Á VES-þinginu koma saman alls 370 þjóðkjörnir þingmenn. VES-þingið hefur aðsetur í París. Tveir þingfundir eru haldnir árlega, oftast í júní og desember. Hlutverk þingsins er að fjalla um málefni er falla undir starfssvið VES, þ.e. öryggis- og varnarmál álfunnar. Þingið fjallar auk þess um ársskýrslur VES og fjárhagsáætlun. Það fjallar um málefni sem eru efst á baugi í nefndum þingsins, ályktar um skýrslu nefnda, gerir tillögur til ráðherraráðs VES og beinir fyrirspurnum til þess. Skjöl þingsins eru gefin út á ensku og frönsku en umræður fara fram á tungumálum aðildarríkjanna.

Starfsemi og umræður á VES-þinginu má greina í þrjá meginflokka. Í fyrsta lagi er þingið vettvangur þingmannavíddar Vestur-Evrópusambandsins og samkvæmt 9. gr. endurskoðaða Brussel-sáttmálans frá 1954 er VES-þingið ráðherraráði VES innan handar og ráðgefandi. VES-þingið hefur eftirlit með framkvæmd sameiginlegra varnarskuldbindinga sem kveðið er á um í 5. gr. sáttmálans. Í 9. gr. sáttmálans kemur fram að ráðherraráð Vestur-Evrópusambandsins skuli birta árlega skýrslu um starfsemi sína til þingmannasamkundunnar sem samanstendur af fulltrúum aðildarríkja Brussel-sáttmálans. Starfsemi VES er þannig bundin í milliríkjasáttmála og er það því ein þriggja evrópskra þingmannasamkundna sem slíkt á við um. Hinar tvær eru Evrópuráðsþingið og Evrópuþingið. Í öðru lagi hefur VES-þingið haft það hlutverk í kjölfar yfirtöku Evrópusambandsins á verkefnum VES árið 2000 að vera tímabundið öryggis- og varnarmálaþing Evrópu og vettvangur þinglegrar meðferðar á sameiginlegri stefnu ESB í öryggis- og varnarmálum. Í þriðja lagi hefur VES-þingið eftirlit með milliríkjasamstarfi á sviði hergagnaframleiðslu og rannsókna- og þróunarstarfs í hergögnum sem sinnt er af WEAG og WEAO, tveimur fjölþjóðastofnunum sem starfa undir væng Vestur-Evrópusambandsins.

VES-þingið hefur verið afgerandi þátttakandi í umræðunni um hvernig staðið verði að evrópsku þingi er hafi öryggis- og varnarmál til umfjöllunar. VES-þingið hefur lagt til að komið verði á fót öryggis- og varnarmálaþingi Evrópu þar sem þjóðkjörnir þingmenn hefðu eftirlit með starfsemi stofnana ESB á sviði öryggis- og varnarmála. Annað væri ótækt þar eð mál er lúti að beitingu herafla og útgjalda til öryggis- og varnarmála væru bundin við þjóðríkin. Þau þyrftu að njóta samþykkis þjóðþinga og þar af leiðandi væri það hlutverk fjölþjóðlegrar þingmannasamkundu sem í sætu fulltrúar þjóðþinganna að ræða slík mál.

Hin sameiginlega öryggis- og varnarmálastefna ESB lýtur ekki stefnu framkvæmdastjórnar bandalagsins sem slíks heldur er um milliríkjamálefni að ræða. Í allri slíkri vinnu er það grundvallaratriði og hafa fulltrúar VES-þingsins því lagt ofuráherslu á að það séu þjóðþing aðildarríkjanna sem hafi eftirlit með þessum málaflokki en ekki Evrópuþingið. Það sé grundvallaratriði að fjölþjóðlegar þingmannasamkundur sem hafa bein tengsl við umbjóðendur, þ.e. kjósendur í aðildarríkjunum, endurspegli mikilvæg milliríkjamálefni. Reynslan af slíkum þingmannasamkundum hafi verið afar farsæl og nægi þar að nefna auk VES-þingsins NATO-þingið, Evrópuráðsþingið og þingmannasamkundu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.

Virðulegi forseti. Þrátt fyrir umfangsmiklar stofnana- og skipulagsbreytingar í Evrópu á undanförnum árum er VES-þingið enn sem komið er eina evrópska þingmannasamkundan sem gefur þjóðkjörnum þingmönnum færi á að fylgjast með og ræða sameiginleg öryggis- og varnarmál álfunnar. Þingið er vettvangur sem leiðtogar Evrópuríkja nýta til að skýra frá stefnumiðum sínum.

Á árinu 2005 varð áframhald á lífseigri umræðu um framtíðarhorfur VES-þingsins og um stofnanatengsl Vestur-Evrópusambandsins við Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið en sem kunnugt er hafa miklar og örar breytingar átt sér stað á sviði öryggis- og varnarmála í Evrópu síðustu ár. Þessi umræða var sérstaklega hávær í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu Frakka og Hollendinga um nýja stjórnarskrá ESB sem báðar þjóðirnar höfnuðu.

Virðulegi forseti. Stjórnarskráin hafði haft þó nokkur áhrif á stöðu varnar- og öryggismála innan ESB en samkvæmt stjórnarskrárdrögum var staða þjóðþinganna veik, t.d. á sviði öryggis- og varnarmála. Eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Frakklandi og Hollandi lá fyrir ákváðu leiðtogar Evrópusambandsins að fresta frekari ákvarðanatöku varðandi stjórnarskrána og taka sér umhugsunartíma um framtíð sambandsins. Austurríkismenn lýstu því yfir við upphaf forsetatíðar sinnar í ESB í ársbyrjun 2006 að þeir hefðu áhuga á að endurvekja stjórnarskrárferlið en lítill áhugi virðist vera á því innan sambandsins.

Ljóst er að ESB taldi útkomuna vera mikið áfall fyrir pólitíska þróun sambandsins og á fundinum kom glögglega fram að framhaldið væri að mestu óráðið. Á hinn bóginn mátti einnig greina að menn töldu að þessi nýja staða væri til þess fallin að greiða fyrir því að niðurstaða í helstu baráttumálum VES-þingsins undanfarin ár og missiri, þ.e. aukin þátttaka og hlutur þjóðþinga í lýðræðislegu eftirliti með öryggis- og varnarmálastefnu ESB, yrði farsælli en ella.

Samkvæmt starfsreglum VES-þingsins á Alþingi í krafti aukaaðildar sinnar rétt á að senda þrjá fulltrúa á fundi VES-þingsins. Aukaaðilar geta samkvæmt núverandi reglum þingsins tekið ríkan þátt í störfum þess og hafa málfrelsi á þingfundum. Þeir njóta þó ekki fullra réttinda og hafa ekki atkvæða- eða tillögurétt á þingfundum. Sú hefð hefur hins vegar skapast að fulltrúar aukaaðildarríkja geta lagt fram tillögur og breytingartillögur í þinginu að því gefnu að fulltrúar aðildarríkja skrifi einnig undir þær. Fulltrúar aukaaðildarríkja hafa ekki heldur rétt til að tala á móðurmáli sínu á fundum þingsins. Á hinn bóginn hafa aukaaðilar rétt til að taka til máls og greiða atkvæði í nefndum og gera breytingartillögur. Þannig geta aukaaðilar haft áhrif á þær tillögur og skýrslur sem ræddar eru á þingfundum þegar þær eru í mótun. Aukaaðilar geta einnig beint fyrirspurn til ráðherraráðs.

VES-þingið kemur sem fyrr segir saman tvisvar á ári til reglulegs þingfundar. Nefndir þingsins halda auk þess fundi nokkrum sinnum á ári. Á árinu tók Íslandsdeildin þátt í báðum hlutum þingfundarins.

Fundurinn einkenndist af umræðunni um framtíð VES-þingsins og auknum áhrifum Evrópuþingsins á evrópsku öryggis- og varnarmálastefnuna. Vandamál tengd stjórnarsáttmála Evrópusambandsins voru einnig til umræðu. Ýmsir þingmenn töldu að höfnun Frakka og Hollendinga á sáttmálanum hefði framlengt líf VES-þingsins og gefið því tækifæri til að styrkja stöðu sína í framtíðarstofnanaverki Evrópusambandsins. Þingfundur hófst með því að Karel De Gucht, utanríkisráðherra Belgíu, sem tók við formennsku í VES 1. júlí, ávarpaði þingheim. Hann lagði áherslu á að nauðsynlegt væri fyrir aðildarríki ESB að horfa á jákvæðan árangur sambandsins undanfarna áratugi í stað þess að einblína á vandamál þess. Hann lagði í því sambandi áherslu á þann mikla árangur sem náðst hefur í samstarfi ESB-ríkja á sviði öryggis- og varnarmála á mjög stuttum tíma.

Seppo Kääriäinen, varnarmálaráðherra Finnlands, sem tók við formennsku í ESB í júlí, flutti því næst ávarp. Hann fjallaði um þrjú meginefni. Í fyrsta lagi áherslu Finna í formennskutíð sinni varðandi pólitískt öryggi sambandsins. Í öðru lagi kynnti hann nokkra þætti í varnarstefnu Finna og í þriðja lagi fjallaði hann um það bil sem myndast hefur milli Evrópusambandsins og íbúa í aðildarríkjunum. Hann sagði að Finnar mundu leitast eftir því að gera Evrópusambandið trúverðugan og samstiga þátttakanda í alþjóðastjórnmálum. Varnarmálaráðherrann lagði áherslu á samstarf ESB-ríkja við vopna- og tækjakaup auk þess sem hann sagði að samstarf sambandsins við þriðja aðila, sérstaklega NATO, þyrfti að styrkja. Hann lagði einnig áherslu á að Finnar mundu áfram standa utan hernaðarbandalaga þótt þeir tækju virkan þátt í öryggis- og varnarsamstarfi ESB og í friðargæsluaðgerðum á vegum bandalaga á borð við NATO. Hann lagði að síðustu áherslu á nauðsyn þess að kynna fyrir íbúum ESB-ríkja þau jákvæðu áhrif sem sambandið hefur haft á líf þeirra. Í því sambandi lagði hann áherslu á hlutverk Evrópusambandsins við að tryggja frið og öryggi í álfunni á undanförnum áratugum.

Utanríkisráðherra Grikklands, Dora Bakoyianni, flutti einnig ávarp á þingfundi. Hún fór yfir stöðu Grikklands í öryggis- og varnarsamstarfi Evrópu og áherslu í varnarsamstarfi innan álfunnar. Æðsti borgaralegi fulltrúi NATO í Afganistan, Hikmet Çetin, fór yfir stöðu mála í landinu og lagði áherslu á þau fjölmörgu vandamál sem alþjóðasamfélagið stæði enn frammi fyrir. Hann sagði frá auknu hlutverki NATO í suður- og austurhluta Afganistan og því mati sínu að ef alþjóðasamfélagið næði ekki að bæta ástandið í Afganistan mundu vandamál landsins flæða yfir til Evrópu.

Virðulegi forseti. Seinni hluti 52. fundar VES-þingsins fór fram í París 18.–20. desember 2006. Fundinn sóttu fyrir hönd Alþingis Guðjón Hjörleifsson, formaður Íslandsdeildar, Gunnar Örlygsson varaformaður og Einar Már Sigurðarson, auk Tómasar Brynjólfssonar, ritara deildarinnar.

Óvissa um framtíð stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins hafði mikil áhrif á umræður á desemberfundum VES-þingsins líkt og verið hefur undanfarið eitt og hálft ár. VES-þingið verður áfram eini samráðs- og eftirlitsvettvangur þingmanna ESB vegna varnar- og öryggissamstarfs aðildarríkja Evrópusambandsins þangað til stjórnarskrársáttmáli verður samþykktur af öllum aðildarríkjum sambandsins. Þingmenn lögðu áherslu á að hver sem niðurstaðan yrði varðandi framtíð stjórnarskrársáttmálans yrði að tryggja lýðræðislegt eftirlit með samstarfi Evrópusambandsríkja á sviði öryggis- og varnarmála.

Þróun evrópsku varnar- og öryggisstefnunnar, samskipti Evrópusambandsins og NATO auk stöðu hergagnaframleiðslu í Evrópu voru meðal annarra málefna sem voru fyrirferðarmikil í umræðum á þingfundum í desember. Málefni Miðausturlanda voru þingmönnum einnig hugleikin. Átökin í Líbanon sumarið 2006 voru ítarlega rædd, sérstaklega ásakanir um skort á samstarfi og samstöðu aðildarríkja ESB við brottflutning Evrópubúa frá átakasvæðinu og við mönnun friðargæsluliðs á landamærum Ísraels og Líbanons.

Þingfundunum í desember má í raun skipta í þrennt. Í fyrsta lagi má nefna undirbúning fyrir starf VES-þingsins fyrir árið 2007, með kosningu yfirmanna þess og umræðum um fjármál þingsins og ráðherrahliðarinnar. Í öðru lagi ávörp ráðherra, fulltrúa þeirra og boðsgesta. Í þriðja lagi kynningar, umræður og kosningar um skýrslur og tillögur sem lagðar eru fram á þinginu

Endurkjör Jean-Pierre Masserets sem forseta VES-þingsins bar hæst vegna undirbúnings fyrir 53. VES-þingið sem fram fer árið 2007. Auk þess voru tíu varaforsetar kjörnir fyrir sama tímabil. Forsetinn og varaforsetarnir nutu einróma stuðnings þingheims. Günter Gloser, Evrópuráðherra Þýskalands, ávarpaði þingið fyrir hönd Þýskalands sem fer með formennsku í Evrópusambandinu og Vestur-Evrópusambandinu frá ársbyrjun 2007. Ráðherrann lýsti stefnu Þýskalands gagnvart evrópsku öryggis- og varnarstefnunni, auk afstöðu Þýskalands til næstu skrefa varðandi stjórnarskrá Evrópusambandsins. Gloser sagði evrópska varnar- og öryggisstefnu standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum vegna styrkingar og breikkunar stefnunnar. Til að bregðast við þessum áskorunum hyggjast stjórnvöld í Þýskalandi beina spjótum sínum að fjórum meginþáttum. Í fyrsta lagi verður lögð áhersla á verkefni og aðgerðir í nafni sambandsins. Í öðru lagi verður litið til styrkingargetu ESB til að ná stjórn á hættuástandi. Í þriðja lagi mun Þýskaland leggja áherslu á styrkingu hernaðarlegs samstarfs við þriðja aðila og í fjórða lagi á þróun hugmyndafræði stefnunnar. Gloser lagði í ræðu sinni áherslu á mikilvægi borgaralegra viðbragða ESB til að takast á við hættuástand. Hann sagði að næsta verkefni evrópsku varnar- og öryggisstefnunnar yrði í Kosovo eftir að samkomulag hefði náðst um framtíðarstöðu héraðsins. Hann sagði að einnig mætti vænta aukinna verkefna fyrir evrópskar sveitir í Afganistan.

Gloser lýsti því yfir að herfylki ESB yrðu reiðubúin til aðgerða frá 1. janúar 2007. Hann sagði þó einnig að enn vantaði ríki til þess að taka að sér verkefni á því sviði eftir árið 2008 og að enn skorti upp á getu stuðningssveita herfylkjanna, t.d. varðandi sjó- og loftflutninga. Auk þess þyrfti að auka enn samhæfingu borgaralegra og hernaðarlegra þátta í viðbragðsgetu ESB við hættuástandi. Einnig þyrfti að styrkja samskipti við aðra áhrifavalda í alþjóðakerfinu, sérstaklega Bandaríkin, NATO og Sameinuðu þjóðirnar. Þá þyrfti að bæta þekkingu og skilning rússneskra stjórnvalda á evrópsku öryggis- og varnarstefnunni. Að lokum lagði ráðherrann áherslu á mikilvægi orkuöryggis fyrir orkustefnu og utanríkisstefnu sambandsins. Í því samhengi þyrfti að líta til aukins samstarfs við ríki sem hafa olíu- og gasleiðslur til Evrópu á landsvæði sínu.

Pertti Torstila, ráðuneytisstjóri í finnska varnarmálaráðuneytinu, sagði getu sambandsins til aðgerða hafa aukist verulega á undanförnum missirum. Auk þess hefði aðgerðum fjölgað til muna og væntingar um aðkomu ESB að krefjandi alþjóðlegum verkefnum aukist verulega. Ráðuneytisstjórinn fjallaði um núverandi verkefni evrópsku öryggis- og varnarstefnunnar og lagði áherslu á mikilvægi borgaralegra viðbragða við hættuástandi. Hann sagði auk þess að ESB væri að líta til nýrra verkefna í ljósi þess að aðgerðum þess í Aceh-héraði í Indónesíu og í Kongó væri lokið.

Virðulegi forseti. Ég hef stiklað á því stærsta sem fram kemur í skýrslunni en eins og áður sagði liggur hún í heild sinni fyrir á Alþingi sem þskj. 915. Ég vil að lokum þakka starfsmönnum alþjóðasviðs Alþingis og samnefndarmönnum mínum í Íslandsdeild VES fyrir gott samstarf. Undir þetta rita Guðjón Hjörleifsson, Gunnar Örlygsson og Einar Már Sigurðarson.