133. löggjafarþing — 79. fundur,  27. feb. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[14:00]
Hlusta

Forseti (Jón Kristjánsson):

Áður en gengið er til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um málefni byggðarlaga utan landshlutakjarna. Málshefjandi er hv. þm. Anna Kristín Gunnarsdóttir. Hæstv. iðnaðarráðherra Jón Sigurðsson verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.