135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

131. mál
[16:49]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á þrennum lögum, það eru lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, lög um tryggingagjald, og lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Tilefni þessa frumvarps er dómur Hæstaréttar í máli gegn íslenska ríkinu sem kveðinn var upp þann 20. september sl. Þar komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að áfrýjandi, útibú erlends fyrirtækis, sem stundar starfsemi hér á landi og notar sér starfsmenn sem ráðnir höfðu verið af erlendum starfsmannaleigum og síðan leigðir hingað til lands teljist vera vinnuveitandi hinna útleigðu starfsmanna og starfsmennirnir því skattskyldir hér á landi, samanber ákvæði tekjuskattslaga um takmarkaða skattskyldu.

Við mat á því hver teldist vinnuveitandi í þessu tilviki leit Hæstiréttur meðal annars til þess hvaða aðili átti rétt til verksins sem til verður við vinnuna og beri áhættu og ábyrgð á því. Við alþjóðlega útleigu á vinnuafli séu þessar heimildir almennt hjá þeim sem unnið er fyrir. Er þessi niðurstaða í fullu samræmi við þá úrskurði sem skattyfirvöld hafa fellt varðandi þetta atriði.

Hæstiréttur komst einnig að þeirri niðurstöðu að á hinn bóginn væri skyldan til að standa skil á staðgreiðslu skv. lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögð á launagreiðanda eða þann sem annast milligöngu á launagreiðslum, væri hugtakið launagreiðandi þrengra hugtak en hugtakið vinnuveitandi og ekki eins margþætt. Fyrir lægi að við breytingar sem gerðar hefðu verið á tekjuskattslögum árið 1995 hefði verið uppi ráðagerð um að það skyldi vera notandi þjónustunnar en ekki starfsmannaleigan sem teldist launagreiðandi og væri þar með skyldugur til að standa skil á staðgreiðslu vegna erlendra útleigðra starfsmanna hér á landi. Þessari ráðagerð hafi hins vegar ekki verið fylgt eftir með breytingu á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Geti ummæli í greinargerð með frumvarpi til breytinga á öðrum lögum en þeim sem gilda um staðgreiðslu opinberra gjalda ekki verið viðhlítandi grundvöllur til að leggja á notendur þjónustu starfsmannaleigna skyldu til staðgreiðsluskila af launum útleigðra starfsmanna. Þurfi til þess skýra heimild í lögum. Samkvæmt þessu taldi Hæstiréttur að það væru hinar erlendu starfsmannaleigur en ekki aðilinn sem nýtti starfskrafta þeirra hér á landi sem almennt teldust launagreiðendur umræddra útleigðra starfsmanna og bæri notanda þjónustunnar því almennt ekki skylda til að standa skil á staðgreiðslu vegna launa þessara starfsmanna.

Með frumvarpinu er því lagt til að fylgt verði eftir þeirri breytingu sem gerð var á lögum um tekjuskatt og eignarskatt á sínum tíma með hliðstæðri breytingu á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda þannig að lagastoðum sé skotið undir þá framkvæmd að það skuli vera notandi þjónustunnar en ekki starfsmannaleigan sem teljist launagreiðandi á grundvelli samninga um útleigu á vinnuafli hafi starfsmannaleigan ekki skattalegt heimilisfesti hér á landi. Einnig eru lagðar til breytingar á lögum um tryggingagjald og lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða til að taka af öll tvímæli um það hver sé launagreiðandi við umræddar kringumstæður.

Frú forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.