136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[12:38]
Horfa

Bjarni Harðarson (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil óska eftir því þegar forsætisráðherra kemur til að svara fyrirspurn sem ég ber upp í ræðupúlti að hann noti þann tíma til að svara fyrirspurn minni. Ég og þjóðin erum engu nær um þá spurningu sem ég lagði fyrir: Komu þingmenn Samfylkingarinnar að þeirri ákvörðun og ráðherrar hennar að stýrivaxtahækkunin ætti að vera upp í 18%? Já eða nei, hæstv. forsætisráðherra.