137. löggjafarþing — 43. fundur, 14. júlí 2009.
aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
38. mál
Frú forseti. Það er með ólíkindum að hv. þingmaður ætlar sér að vinna að því að draga trójuhestinn inn fyrir borgarmúrana, inn fyrir varnir Íslands, sem fulltrúi Vinstri grænna hér á Alþingi. Ég hlýt að spyrja hv. þingmann: Vill hann sjá Ísland inni í Evrópusambandinu eftir einhver 3–4 ár?