137. löggjafarþing — 46. fundur,  23. júlí 2009.

Lánasjóður íslenskra námsmanna.

82. mál
[19:03]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég tel rétt að gera grein fyrir því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í menntamálanefnd skrifuðu undir nefndarálitið en gerðu fyrirvara varðandi kostnaðarmatið á frumvarpinu. Það liggur ekki fyrir og var ekki hægt að leggja fram nein gögn varðandi það hvaða áhrif þetta hefði á sjóðinn og hvaða kostnað þetta hefði í för með sér.

Að öðru leyti fögnum við þessu máli og ég kem til með að greiða því atkvæði.