138. löggjafarþing — 18. fundur,  3. nóv. 2009.

dómstólar.

100. mál
[18:05]
Horfa

dómsmála- og mannréttindaráðherra (Ragna Árnadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að horfa verði til atriða af þessu tagi þegar landinu er skipt í þinghár. Ég var t.d. í heimsókn í Vestmannaeyjum um daginn og það er ljóst að aðstæður eru ólíkar í mismunandi landshlutum, þetta er eitt af því sem þarf að huga vel að.