138. löggjafarþing — 119. fundur,  7. maí 2010.

heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ.

320. mál
[12:49]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég sit í þingmannanefnd sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um hrunið, aðdraganda hrunsins. Þar er Björgólfur Thor Björgólfsson einn aðalleikarinn. Ég á einnig sæti í iðnaðarnefnd, þar hef ég sagt mig frá umfjöllun um þetta tiltekna mál. Þar sem við í þingmannanefndinni erum að fjalla um ýmisleg siðferðileg álitamál og höfum ekki skilað af okkur mun ég ekki greiða atkvæði í þessu máli.