139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:27]
Horfa

Árni Johnsen (S):

Virðulegi forseti. Við berjumst enn við hryðjuverk Evrópubandalagsins. Það er mikil upplausn í landinu, erfiðleikar, óöryggi, stjórnleysi og doði. Það er tímabært á þessari stundu og við afgreiðslu þessa máls að við efnum til fundar með okkar fólki, þjóðinni allri, og afgreiðum þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég segi já.