139. löggjafarþing — 156. fundur,  2. sept. 2011.

tilkynning um úrsögn úr þingflokki.

[10:35]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 26. ágúst sl., frá Guðmundi Steingrímssyni, 8. þm. Norðvest.:

„Í framhaldi af úrsögn minni úr Framsóknarflokknum segi ég mig hér með úr þingflokki framsóknarmanna. Mun ég nú starfa sem þingmaður utan flokka.“