140. löggjafarþing — 20. fundur, 10. nóv. 2011.
mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist tilkynning frá þingflokksformanni Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum, samanber 16. gr. þingskapa.
Siv Friðleifsdóttir tekur sæti í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Eyglóar Harðardóttur.
Eygló Harðardóttir tekur sæti Sivjar Friðleifsdóttur í velferðarnefnd.
Þessi mannaskipti skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.