140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

256. mál
[11:17]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er ýmislegt í þessu frumvarpi sem hefur verið betrumbætt. Þar inni eru hins vegar þættir sem hugnast í það minnsta ekki mér og ég hefði viljað skoða frekar. Ég mun því óska eftir því við hæstv. forseta að þetta mál gangi til nefndar á milli 2. og 3. umr. og hyggst sitja hjá við atkvæðagreiðslu að þessu sinni.