141. löggjafarþing — 6. fundur,  19. sept. 2012.

mat á umhverfisáhrifum.

87. mál
[16:14]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum, með síðari breytingum. Hér er mælt fyrir frumvarpinu í annað sinn en frumvarpið hlaut ekki endanlega afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á 140. löggjafarþingi. Farið var yfir þær umsagnir sem bárust nefndinni og leiddu athugasemdir Vegagerðarinnar til dálítilla breytinga á frumvarpinu sem hér er mælt fyrir.

Í frumvarpi þessu er lögð til breyting á gildandi lögum um mat á umhverfisáhrifum en tilgangur breytingarinnar er fyrst og fremst að koma til móts við athugasemdir ESA er varða innleiðingu Íslands á einstökum ákvæðum tilskipunar 85/337/EBE. Markmiðið með frumvarpinu er að uppfylla ákvæði tilskipunarinnar og koma til móts við athugasemdir ESA ásamt því að gera einstakar lagfæringar á lögum sem þörf er talin á í ljósi reynslunnar. Mun frumvarpið hafa þau áhrif að fleiri framkvæmdir þarf að tilkynna til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um mat á umhverfisáhrifum.

Umhverfisráðuneytinu bárust athugasemdir ESA með bréfi sem dagsett var 1. febrúar 2010. Þar er vísað til þess að í ljósi dómsniðurstöðu Evrópudómstólsins í máli nr. C-255/08 hafi ESA ákveðið að hefja skoðun á innleiðingu EES/EFTA-ríkjanna á tilskipun 85/337/EBE. ESA gerir athugasemdir við innleiðingu tilskipunarinnar í lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Að mati ESA uppfyllir Ísland ekki ákvæði tilskipunarinnar hvað varðar þau viðmið sem koma fram í 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum. Athugasemdirnar fjalla um þau viðmiðunarmörk framkvæmda er varða stærð og staðsetningu framkvæmdanna sem er að finna í umræddum viðaukum.

Enn fremur gerir ESA athugasemd við orðalag nokkurra annarra ákvæða viðaukanna. Evrópudómstóllinn hefur fjallað um ákvæði tilskipunarinnar í nokkrum dómum sínum og var túlkun Evrópudómstólsins á tilskipuninni skoðuð og tekið mið af niðurstöðu dómstólsins í þeim málum við vinnslu frumvarpsins.

Helstu nýmæli í frumvarpinu eru þau að gerð er tillaga um að framkvæmdir þær sem eru matsskyldar samkvæmt 5. gr. laganna og tilkynningarskyldar til ákvörðunar um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt 6. gr. laganna verði flokkaðar í þrjá flokka, flokk A, B og C.

Í flokk A falla þær framkvæmdir sem eru matsskyldar samkvæmt núgildandi lögum og finna má í 1. viðauka laganna. Í flokki B er að finna þær framkvæmdir sem kunna að vera háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt núgildandi lögum og falla undir 2. viðauka. Í flokki C eru þær framkvæmdir sem fallið hafa utan viðmiðunarmarka þeirra framkvæmda sem tilgreindar eru í 2. viðauka og nauðsynlegt þykir í ljósi athugasemda ESA að bæta við viðauka gildandi laga.

Lagt er því til að í stað þriggja viðauka verði tveir viðaukar. Í 1. viðauka verða tilgreindar þær framkvæmdir sem falla í tilgreinda flokka, A, B og C, en í 2. viðauka er að finna ákvæði þau sem eru í 3. viðauka núgildandi laga með viðbótum, þannig að um einfaldari framsetningu er að ræða.

Gerðar eru breytingar á einstökum ákvæðum viðaukanna til að þau falli betur að ákvæðum tilskipunarinnar og þótti ástæða til að gera orðalag skýrara á nokkrum stöðum. Enn fremur er gerð breyting á 3. gr. laga nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana. Í lögum um umhverfismat áætlana segir að lögin gildi um umhverfismat þeirra skipulags- og framkvæmdaáætlana og breytinga á þeim sem marki stefnu er varði leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum. Áætlanir með framkvæmdum sem falla undir C-flokk framkvæmda eru ekki taldar marka stefnu er varðar leyfisveitingar til framkvæmda og eru því undanskildar umhverfismati áætlana.

Gerð er tillaga að breyttri uppsetningu 1. viðauka þar sem framkvæmdir samkvæmt núgildandi 1. og 2. viðauka eru númeraðar. Framkvæmdir eru flokkaðar saman og tilgreint er hvort viðkomandi framkvæmd falli í flokk A, B eða C.

Í frumvarpinu er gerð tillaga að mismunandi málsmeðferð hvers flokks framkvæmda fyrir sig. Varðandi matsskyldar framkvæmdir, sem er að finna í 1. viðauka núgildandi laga og gerð er tillaga um að falli í flokk A, verður um óbreytta málsmeðferð að ræða frá núgildandi lögum. Hvað varðar þær framkvæmdir sem kunna að vera háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt núgildandi 2. viðauka laganna og gerð er tillaga um að falli í flokk B verður einnig um óbreytta málsmeðferð að ræða. Fyrir þær framkvæmdir sem fallið hafa utan viðmiðunarmarka núgildandi laga og gerð er tillaga um að verði tilkynningarskyldar og falli í flokk C í samræmi við athugasemdir ESA er í frumvarpi þessu gerð tillaga að einfaldari málsmeðferð en lagt er til varðandi þær framkvæmdir sem falla í flokk B.

Markmið einfaldari málsmeðferðar í flokki C er að stytta þann tíma sem tekur Skipulagsstofnun að taka ákvörðun um matsskyldu. Gerðar verða vægari kröfur til framkvæmdaraðila um skil á gögnum með tilkynningu um framkvæmdir í flokki C til Skipulagsstofnunar. Enn fremur er gert ráð fyrir styttri tímafrestum fyrir Skipulagsstofnun fyrir þessar framkvæmdir til að taka ákvörðun um matsskyldu og verður stofnuninni heimilt en ekki skylt að leita umsagnar vegna slíkra framkvæmda. Með framangreindum breytingum verður komið til móts við athugasemdir ESA.

Virðulegur forseti. Ég hef rakið hér meginefni frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.