141. löggjafarþing — 57. fundur, 19. des. 2012.
fjárlög 2013.
1. mál
Virðulegi forseti. Ég ætla að leiðrétta hv. formann fjárlaganefndar. Ég talaði um að ég teldi það jaðra við lögbrot að forsendum vegna sýningar Náttúruminjasafnsins hefði verið breytt í nefndaráliti án þess að þær hefðu verið kynntar eða ræddar í fjárlaganefnd. Það var ekki annað sem ég taldi vera lögbrot.