143. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2013.

trúnaður á tillögum fjárlaganefndar.

[11:06]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Vegna þess að hér er hafin umræða um fundarstjórn forseta vil ég bara láta það sjónarmið koma fram að ég tel fundarstjórn forseta með ágætum og hvet hann til að halda henni áfram á þessum nótum. (Gripið fram í: Heyr.)