143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[21:49]
Horfa

Sigrún Magnúsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum. Við ræddum um almenna skuldaleiðréttingu. Ég kannast ekki við að hafa nefnt þær tölur sem þingmaðurinn talar um, hann talar um heildina upp á 5,7%. Ég hef aldrei heyrt það fyrr en hér í dag, verð að viðurkenna það.

Það sem ég hef reiknað út og hefur verið reiknað út að mér viðstaddri er að mjög mörg heimili fá samtals út úr þessum tveimur frumvörpum 20% leiðréttingu á skuldum sínum.