143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

rannsóknir á umfangi og nýtingarmöguleikum sjávarorku.

293. mál
[19:11]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. atvinnuveganefnd fyrir rösklega afgreiðslu á málinu núna í lok þingsins. Þingsályktunartillagan hefur verið lögð fram held ég fjórum sinnum og tvisvar afgreidd út úr nefndinni. Núna kemst hún á dagskrá og ég veit að um hana er þverpólitísk sátt og málið verður til framfara. Takk fyrir.