143. löggjafarþing — 121. fundur,  16. maí 2014.

þingfrestun.

[22:21]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Ég þakka hv. 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, Svandísi Svavarsdóttur, fyrir hlý orð og góðar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og hv. þingmönnum fyrir að taka undir þau orð með því að rísa úr sætum.

Ég endurtek þakkir mínar og óskir til allra hv. þingmanna og sömuleiðis til alls starfsfólks Alþingis.