143. löggjafarþing — 123. fundur,  18. júní 2014.

frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.

616. mál
[17:30]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti var eingöngu að vísa til þess að slíkt samráð hefði átt sér stað, en auðvitað er skipulag þingfundarins í höndum þingforseta. Eins og þingforseti sagði áðan var það hans mat að þó að málið væri að efni til stórt kallaði það ekki á sérstakan fund með þingflokksformönnum til að fjalla um fyrirkomulag fundarins. Það var nokkuð sem lá nokkurn veginn ljóst fyrir hvernig mundi fara fram og öllum hv. þingmönnum var mætavel ljóst.