144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

stjórnarfrumvörp væntanleg fyrir þinglok.

[14:50]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Í fyrsta lagi er mjög sérkennilegt að heyra hv. þm. Guðmund Steingrímsson leggjast alfarið gegn virkjunum og orkuframleiðslu og telja það á einhvern hátt óhreina atvinnugrein í ljósi þess að hv. þingmaður er flutningsmaður ásamt öllum flokksfélögum sínum á þingi að tillögu um að fara að flytja út orku í stórum stíl, orku sem nemur um 70 Hagavatnsvirkjunum. Ég veit ekki hvernig hv. þingmaður ætlar að fara að því ef hann leggst alfarið gegn því að ráðast í svo mikið sem eina virkjun í viðbót við það sem nú er.

Hvað varðar viðbótaraðkomu stjórnvalda að kjarasamningum þá hefur það líka legið fyrir lengi og ég hef svarað því svo lengi sem hv. þingmaður og aðrir hafa spurt um það, að ríkisstjórnin væri tilbúin að koma að viðræðum aðila vinnumarkaðarins á þann hátt sem mætti verða til þess að kjarasamningarnir skiluðu sem mestri kaupmáttaraukningu, en þó sérstaklega til fólks með millitekjur og lægri tekjur. Þar verða menn hins vegar að líta til þess hver verður niðurstaða hjá þeim aðilum sem eru í viðræðum vegna þess að menn hljóta að þurfa að laga aðkomu ríkisins að því sem kemur út úr því. Þar af leiðandi er ómögulegt, virðulegur forseti, að lýsa því yfir fyrir fram að aðgerðir eða innkoma ríkisvaldsins verði með tilteknum hætti á meðan menn sjá ekki til lands, vita ekki hvað aðilarnir semja um. Þá getur viðbót frá ríkisvaldinu jafnvel orðið til þess að auka við hugsanleg neikvæð áhrif kjarasamninga. Þá á ég við til að mynda verðbólguþrýsting. Það viljum við ekki. Við viljum að kjarasamningarnir skili raunverulegum kjarabótum en verði ekki til þess að hér fari verðbólgubálið aftur á fulla ferð.