145. löggjafarþing — 1. fundur,  8. sept. 2015.

afbrigði um sætaúthlutun.

[13:11]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgrein 3. gr. þingskapa, um hvernig hluta skuli um sæti þingmanna. Samkomulag er milli forseta og formanna þingflokka um að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi í salnum fyrir formennina, að þeir dragi innbyrðis um þessi sæti. Samkvæmt þessu hefur Ásmundur Einar Daðason sæti 8, Birgitta Jónsdóttir sæti 23, Brynhildur Pétursdóttir sæti 22, Helgi Hjörvar sæti 44, Ragnheiður Ríkharðsdóttir sæti 45 og Svandís Svavarsdóttir sæti 7.

Enn fremur hefur orðið samkomulag um hvernig hluta skuli um sæti þingmanna þannig að hv. þingmenn Steinunn Þóra Árnadóttir og Björt Ólafsdóttir geti fengið sæti sem þeim hentar sérstaklega hér í salnum. Þetta er sæti 14 fyrir hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur og sæti 32 fyrir hv. þm. Björt Ólafsdóttur.

Skoðast þessi afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.