145. löggjafarþing — 70. fundur,  1. feb. 2016.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:15]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Með bréfi, dagsettu 27. janúar sl., hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um samninga ríkisins vegna sjúkrahótels í Ármúla og um fjárveitingar til fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks.