145. löggjafarþing — 129. fundur,  8. júní 2016.

kjaramál Félags íslenskra flugumferðarstjóra.

815. mál
[15:25]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill taka fram að fyrir misskilning áttaði forseti sig ekki á því að fleiri þingmenn en tveir höfðu óskað eftir að veita andsvar við ræðu hæstv. innanríkisráðherra. Verður ræðutími því ekki styttur í eina mínútu í síðari umferð heldur gefið færi á því að hv. þingmenn geti talað fullan skammt í þessum andsvörum.