145. löggjafarþing — 161. fundur,  3. okt. 2016.

starfsáætlun þingsins.

[11:03]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Vegna ómaklegra orða formanns Samfylkingarinnar, Oddnýjar G. Harðardóttur, í garð forseta hér áðan þar sem hún ýjaði að því að hæstv. forseti ræddi við þingflokk Sjálfstæðisflokksins einan og sér um dagskrá þingsins, vil ég láta þess getið hér og nú að þessi orð voru harla ómakleg og eiga ekki við rök að styðjast.