146. löggjafarþing — 37. fundur,  1. mars 2017.

merking á vörum frá hernumdum svæðum Palestínu.

76. mál
[18:38]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Virðulegi forseti. Allir þeir sem hafa einhvern tímann tjáð sig um gildi mannréttinda ættu að styðja þessa tillögu. Allir þeir sem styðja mannréttindi ættu að styðja þessa tillögu. Allir þeir sem hafa tjáð sig um og styðja að neytendur hafi frelsi til upplýsts vals ættu að styðja þessa tillögu. Allir þeir sem virða mannfólk ættu að styðja þessa tillögu. Ég styð þessa tillögu.