148. löggjafarþing — 59. fundur,  3. maí 2018.

störf þingsins.

[10:34]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Virðulegi forseti. Mig langar að ræða um tvö af hugðarefnum mínum, bólusetningar og skimanir, hvort tveggja mikilvægar forvarnir sem hafa aðeins látið undan í samfélagi okkar eins og þingmenn þekkja vafalaust af umræðu undanfarinna daga. Fólk velur í meira mæli en áður að sækjast ekki eftir bólusetningum fyrir börn sín og trassar í meira mæli að mæta í þær skimanir sem gætu aðstoðað við að finna læknanlega sjúkdóma, til að mynda ýmis krabbamein.

Það er afar mikilvægt fyrir lýðheilsuna að fólk sinni þessum atriðum. Við erum með tiltölulega góða stöðu í heilbrigðismálum sem ekki er tilkomin fyrir tilviljun heldur m.a. af þeirri staðreynd að Íslendingar hafa í gegnum tíðina látið sig þessa þætti varða. Þetta er gríðarlega mikilvægt í lýðheilsulegu tilliti og ég tala ekki um með tilliti til þess hvernig þjóðinni farnast heilsufarslega.

Það eru töluvert margir lykilsjúkdómar sem nánast er hægt að útiloka með bólusetningum og það eru margir erfiðir sjúkdómar sem hægt er að koma í veg fyrir að stórum hluta með því að stunda skimanir við krabbameinum. Þetta skiptir miklu máli.

Ég mun á næstu dögum og vikum ræða það við hæstv. heilbrigðisráðherra og bera það upp í velferðarnefnd hvort ekki sé ástæða til að ráðuneytið og nefndin taki upp þessa þætti og skoði þessi mál til að tryggja að þjóðin haldi áfram þeirri stöðu (Forseti hringir.) að vera ein af heilbrigðustu þjóðum í heimi.