149. löggjafarþing — 34. fundur,  20. nóv. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[16:58]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir andsvarið. Þessar fullyrðingar, eins og hann kallar það, eru tölur sem ég fékk frá gestum sem heimsóttu okkur á þingflokksfund úr félagi sem ég man ekki alveg hvað heitir, félagi fyrirtækja í velferðarþjónustu … (Gripið fram í.) — Já. Þau lýstu miklum áhyggjum yfir því að samningar væru útrunnir og það væri ekki bjart fram undan hjá þeim. Ég hef þetta því ekki eftir mínu eigin höfði heldur eftir upplýsingum, svo að það sé sagt.