149. löggjafarþing — 43. fundur, 7. des. 2018.
fjárlög 2019.
1. mál
Virðulegur forseti. Efnahagslegar forsendur fjárlaga gera ráð fyrir því að verðbólga á næsta ári verði 3,6% og að bætur til elli- og örorkulífeyrisþega muni hækka um samsvarandi prósentu. Hér er lagt til að bætt verði við 1% til viðbótarhækkunar til að tryggja þessum viðkvæmasta hópi samfélagsins lágmarkskaupmáttaraukningu líkt og öðrum íbúum þessa lands.
Ég segi já.