149. löggjafarþing — 51. fundur, 14. des. 2018.
fjáraukalög 2018.
437. mál
Herra forseti. Miðflokkurinn telur að fjáraukalög eigi einungis að nota í neyðartilfellum þar sem varasjóðir hafa tekið við hlutverki fjáraukalaga. Það er ljóst að mikill misbrestur er á því að frumvarpið sé í samræmi við ákvæði laga sem um það gilda. Það er afar mikilvægt að úr því verði bætt. Þar er virðing Alþingis í húfi.