149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[04:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Nú þykir forseta orðið nokkuð langt gengið í ítrekuðum ummælum hv. þingmanna Miðflokksins hér í andsvörum sem láta að því liggja nokkuð sterklega að annarlegar hvatir liggi að baki afstöðu annarra þingmanna til þessa máls. Forseti fer fram á það, þó að hér sé langt liðið á nótt, og hér eigi orðaskipti flokksbræður, að þeir gæti orða sinna.