149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[09:49]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti getur upplýst að ekki hefur verið tekin ákvörðun um nákvæmlega hversu langur þessi þingfundur mun verða. Það er rétt sem hv. þingmenn segja, hér verða eldhúsdagsumræður í kvöld og forseti getur lofað því að fólk kemst heim til að undirbúa sig fyrir þá umræðu. Það er rétt sem fram kom, ætlast er til þess að þingmenn séu í salnum við eldhúsdagsumræðu eins og vant er.