149. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2019.

stjórnsýslulög.

493. mál
[10:44]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa skýringu. Það er kannski eðlilegt að það taki smátíma að dusta rykið af málum og auðvitað þurfti nefndin að hafa góðan tíma til að sjá til þess að sú hreingerning yrði fullkomnari. En ljóst er að þeir örfáu vankantar sem hafa kannski verið á þeirri hreingerningu hafa nú verið leystir af hálfu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég þakka því fyrir þá góðu vinnu.